Guacamole
2 þroskuð avocado
Hálft chilli
1/3 paprika
5 kirsuberjatómatar
1-2 hvítlauksrif
1/4 rauðlaukur
Ferskt kóríander eftir smekk (ég set mikið)
safi úr 2 lime
salt, pipar, cayenne pipar
Ég set avocado, smá vatn, hvítlaukinn og lime safann í
matvinnsluvél og set síðan maukið í skál.
Sker allt grænmetið mjög smátt og hræri því síðan útí.
Að lokum kryddað eftir smekk, ég elska allt sem er sterkt þannig
ég set smá cayenne pipar útí.
Comments
Post a Comment