Vanillubollakökur
Uppskrift úr Bollakökur Rikku, ég mæli með þessari bók... hún er algjör æði !!
270 gr sykur
150 gr smjör
2 egg
240 gr hveiti
1/2 tsk lyftiduft
50 ml mjólk
1 tsk vanilludropar
Hitið ofninn í 170°C. Hrærið sykur og smjör þar til blandan verður ljós og létt. Bætið þá einu eggi í senn og hrærið á milli. Blandið þurrefnunum saman við ásamt mjólkinni og dropunum. Setjið jafnt í formin og bakið í 14-16 mín.
Uppskriftin er í 24 kökur.

Comments
Post a Comment