Súkkulaðibitakökur með haframjöli





Mjúkar að innan, örlítið stökkar að utan og fullar af súkkulaði. Þessar kökur urðu uppáhaldið á heimilinu og voru vinsælasta nýja smákökuuppskriftin mín um jólin 2017.

Hráefni

  • 225 g smjör, mjúkt
  • 175 g púðursykur
  • 100 g sykur
  • ½ tsk vanilludropar
  • 2 egg
  • 200 g hveiti
  • ¼ tsk salt
  • 1 tsk matarsódi
  • 200 g haframjöl
  • 150 g súkkulaðidropar eða saxað súkkulaði

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Hrærið saman smjöri, púðursykri, sykri og vanilludropum þar til blandan verður ljós og létt.
  3. Bætið eggjunum út í, einu í einu, og hrærið vel.
  4. Blandið saman hveiti, salti og matarsóda og bætið varlega saman við deigið. Hrærið aðeins þar til allt hefur blandast.
  5. Hrærið haframjölinu og súkkulaðidropunum saman við.
  6. Mótið litlar kúlur og raðið á bökunarplötu klædda bökunarpappír. Hafið gott bil á milli þar sem kökurnar renna aðeins út við bakstur.
  7. Bakið í 12–15 mínútur, eftir stærð, eða þar til kökurnar eru orðnar fallega gullnar.
  8. Látið þær kólna í nokkrar mínútur á plötunni áður en þær eru færðar yfir á grind.

💛 Birnu-ráð

  • Passið að ofbaka þær ekki. Köturnar eiga að vera örlítið mjúkar þegar þær koma úr ofninum – þær stífna þegar þær kólna.
  • Notið gróft saxað dökkt súkkulaði í stað súkkulaðidropa fyrir enn meiri súkkulaðibita.
  • Deigið má geyma í kæli í allt að tvo sólarhringa eða frysta í litlum kúlum og baka beint úr frysti.

Ummæli