Þessi uppskrift er innblásin af einu af mínum uppáhalds uppskriftabloggum, Ljúfmeti. Ég prófaði hana í fyrsta sinn fyrir fjölskylduna og hún sló heldur betur í gegn.
Strákarnir mínir (já, eiginmaðurinn er talinn með 😉) voru mjög hrifnir af þessum rétti. Hann er bæði fljótlegur og einfaldur í gerð og sósan er einstaklega bragðgóð.
Ég bætti aðeins við uppskriftina með því að setja út í fryst strimlagrænmeti. Mér fannst það gera réttinn bæði litríkari og gefa honum meira jafnvægi – og það er alltaf gott að lauma aðeins meira grænmeti inn í matinn.
Þetta er einn af þessum réttum sem henta fullkomlega á annasömum virkum dögum þegar tíminn er naumur en maður vill samt bjóða upp á góða heimagerða máltíð.
Uppskriftina má nálgast hér: https://ljufmeti.com/2012/08/01/pylsu-stroganoff/

Ummæli
Skrifa ummæli