Ef þið eruð að leita að einföldum og fjölskylduvænum fiskrétti þá mæli ég sannarlega með þessumm hjá Cafe Sigrún.
Það sem mér finnst skemmtilegast við þessa uppskrift er að fiskibollurnar eru ofnsteiktar í stað þess að vera djúpsteiktar. Þær verða fallega gylltar og stökkar að utan en eru jafnframt léttari og aðeins hollari.
Við fjölskyldan vorum mjög hrifin af þeim – strákarnir mínir borðuðu þær af bestu lyst og það segir yfirleitt sitt. 😊
⭐ Einkunn frá okkur: 4,5 af 5
💛 Birnu-ráð
Ég gerði fjórfalda uppskrift.
- Tvöfalda uppskrift sem var eggjalaus, þar sem ég notaði eggjalíki í stað eggja.
- Tvöfalda samkvæmt upprunalegu uppskriftinni.
Báðar útgáfurnar heppnuðust mjög vel, þannig að ég get hiklaust mælt með eggjalausu útgáfunni fyrir þá sem þurfa á henni að halda.
Uppskriftin er innblásin af annarri uppskrift sem ég prófaði og aðlagaði að okkar þörfum. Hana má nálgast hér: https://www.cafesigrun.com/fiskibollur

Ummæli
Skrifa ummæli