Dagur 2 - Kjúklingaleggir með rjómasósu


Þessi uppskrift er innblásin af uppskrift frá Eldhússögum og varð fljótt einn af þeim réttum sem fara reglulega á matseðilinn hjá okkur.

Hann er einstaklega einfaldur í gerð en kemur virkilega á óvart hvað hann er bragðgóður. Strákarnir mínir hámuðu hann í sig og það er alltaf gott merki. 😊

Einkunn frá okkur: 4,5 af 5

Ég ákvað að bera réttinn fram með kúskúsi í stað þess sem upprunalega uppskriftin gerir ráð fyrir. Á meðan kúskúsið var að eldast bætti ég smá túrmeriki út í vatnið sem gaf bæði fallegan lit og milt kryddbragð.

Síðan hellti ég sósunni yfir kúskúsið... og vá, það var alveg ótrúlega gott!

💛 Ef þið eruð að leita að fljótlegum og bragðgóðum hversdagsrétti, þá mæli ég svo sannarlega með þessum.


Uppskriftin er innblásin af Eldhússögum og ég hef aðlagað meðlætið að okkar smekk. Uppskriftina má nálgast hér: https://eldhussogur.com/2012/11/06/himneskir-kjuklingaleggir-med-rjomasosu/

Ummæli