Snickers Marengsterta
4 eggjahvítur
3 dl sykur
1 tsk lyftiduft
4 dl rice crispies
Hitið ofninn í 150°C. Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið síðan sykrinum rólega saman við ásamt lyftiduftinu. Hrærið síðan rice crispiesinu varlega saman við með sleif.
Skiptið blöndunni í tvennt og setjið á 2 bökunarplötur. Bakist í 1 klst.
Fylling:
1 1/2 peli rjómi
2 snickers
Þeytið rjóma og skerið snickersið í litla bita og hrærið saman við. Setjið á milli botnanna
Ofaná:
2 snickers
smá mjólk/rjóma
Bræðið snickersið með rjómanum í potti við vægan hita. Látið kólna örlítið og hellið svo yfir kökuna.
Comments
Post a Comment