⭐ Ein vinsælasta uppskriftin á Birnumatur
Þessar bollur hafa fylgt mér í mörg ár og eru enn meðal vinsælustu uppskriftanna á síðunni. Það skemmtilegasta er að uppskriftin hefur meira að segja verið notuð í háskólaritgerð – það finnst mér ansi magnað! 😊
Þær eru mjúkar, loftkenndar og tilbúnar á ótrúlega stuttum tíma. Fullkomnar með súpu, morgunmatnum eða nýbakaðar með smjöri og osti.
Hráefni
- 200 g hveiti
- 200 g heilhveiti
- 1 bréf þurrger
- 1 tsk salt
- 1 msk sykur
- 1½ dl mjólk
- 1½ dl heitt vatn
- ¾ dl olía
Til að pensla
- Egg eða mjólk
- Fræ eftir smekk (sesam, birkifræ, sólblómafræ o.fl.)
Aðferð
- Hitið ofninn í 220°C.
- Setjið hveitið í skál og takið frá um 1 dl sem verður notað síðar ef þarf.
- Blandið saman restinni af hveitinu, heilhveiti, þurrgeri, salti og sykri.
- Hellið mjólk, heitu vatni og olíu saman við.
- Hnoðið þar til deigið verður mjúkt og teygjanlegt. Bætið hveitinu sem var tekið frá smám saman út í ef deigið er of klístrað.
💡 Deigið á að vera mjúkt en ekki festast við hendurnar.
- Látið deigið hvíla í skálinni á meðan þið undirbúið plötuna. (Ef tími er naumur má jafnvel sleppa þessari bið.)
- Mótið stórar bollur og raðið á bökunarpappírsklædda ofnplötu.
- Penslið með eggi eða mjólk og stráið fræjum yfir.
- Bakið í 10 mínútur, eða þar til bollurnar eru fallega gylltar.
💛 Birnu-ráð
- Bollurnar eru langbestar nýbakaðar með smjöri.
- Hægt er að bæta við sólblómafræjum, graskersfræjum eða höfrum í deigið.
- Þær frjósa einstaklega vel og gott er að hita þær aðeins áður en þær eru bornar fram.

Snilldar uppskrift..nota hana mjög oft..klikkar ekki..takk fyrir.
SvaraEyðaKærar þakkir, já hún er æðisleg þessi. Fljótleg og góð.
EyðaÞarf ekki að leysa gerið upp fyrst
Eyða