⭐ Pizzadeig sem klikkar aldrei
Þegar mig langar í heimagerða pizzu geri ég langoftast þetta deig. Það er einfalt, fljótlegt og verður einstaklega mjúkt og loftkennt. Pilsnerinn gefur deiginu frábæra áferð og bragð – og nei, það bragðast ekki af bjór! 😉
Hráefni
- 500 g hveiti
- 5 g sykur
- 5 g þurrger
- 5 g salt
- 1 tsk oregano
- ½ dós pilsner
- 60 ml ólífuolía eða matarolía
Aðferð
- Setjið öll hráefnin í hrærivél með hnoðkrók.
- Hnoðið deigið í 8–10 mínútur, eða þar til það verður mjúkt og teygjanlegt.
- Setjið deigið í létt smurða skál.
- Hyljið með viskustykki eða plastfilmu.
- Látið hefast í að minnsta kosti 2 klukkustundir.
💛 Best verður deigið ef það fær að hefast aðeins lengur eða jafnvel yfir nótt í ísskáp.
🍕 Hugmyndir að áleggi
- Pepperoni og mozzarella
- Skinka og ananas
- Beikon og jalapeños
- Sveppir og piparostur
- Parma, rucola og parmesan
💛 Birnu-ráð
- Skiptið deiginu í 2 stórar pizzur eða 4 minni.
- Bakið á vel heitum pizzasteini eða forhitaðri ofnplötu fyrir stökkari botn.
- Penslið kantana með smá ólífuolíu áður en pizzan fer í ofninn fyrir fallegan gylltan lit.

Nice Blog !
SvaraEyðawomen
health