Satay Kjúklingasalat

Uppskrift úr Vikunni



1 pk kúskús m/sólþurrkuðum tómötum
4-5 kjúklingabringur
olía til steikingar
2 dósir satay sósa
300 gr spínat
2 lárperur, skornar í bita
1 rauðlaukur, skorinn í sneiðar
400 gr kirsuberjatómatar
200 gr salthnetur
1 krukka fetaostur í kryddolíu

Skerið kjúklingabringur í teninga og steikið við meðalhita á pönnu. Hellið sataysósunni og látið krauma í nokkrar mínutur. Útbúið kúskús samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Setjið spínat í botninn á eldföstu móti og setjið kúskús ofan á það. Hellið síðan kjúklingnum ásamt sósunni yfir. Dreifið lárperu, rauðlauk, kirsuberjatómötum, hnetum og fetaosti yfir og berið fram.

Líka gott kalt.

Comments

Popular Posts