Kjúklingur með fetaosti og spínati

4 kjúklingabringur
1 stór sæt kartafla
1 poki spínat
1 krukka fetaostur
Smá balsamedik
Smá sjávarsalt

Hitið ofninn í 180°C. Skerið kjúklingabringurnar í bita. Setjið olíuna af fetaostinum og smá balsamedik í skál og látið kjúklingabringurnar liggja í leginum í ca klukkustund. Skerið sætu kartöfluna skorin í bita/sneiðar og raðið í botninn á eldföstu móti. Spínatið er síðan sett ofan á og loks kjúklingurinn ofan á spínatið og leginum hellt með. Að lokum er öllum fetaostinum stráð yfir. Þetta fer svo inn í ofn í 30-40 mínútur.

Berið fram með fersku salati og nýbökuðu brauði.

Comments

Popular Posts