Hummus með sólþurrkuðum tómötum og kryddi

Gerði rosa góðan hummus áðan, sem er mjög góður próteingjafi.

1 dós Kjúklingabaunir
1 hvítlauksrif, marinn
8 stk sólþurrkaðir tómatar
1 msk tahini
ólívuolía
sítrónusafi
grænmetissalt - Herbamare
svartur grófmulinn pipar
turmerik
cumin

Setjið baunir, hvítlauk, tómata og tahini í matvinnsluvél og vinnið saman. Bætið ólívuolíunni útí, magn eftir smekk ( ég setti kannski ca hálfan dl). Smakkið svo til með sítrónusafa og kryddi.

Gott að skera grænmeti (paprika, gúrka, gulrætur....) í strimla og notið sem ídýfu. Eða setjið ofan á hrökkbrauð með salatblaði og ferskum tómatsneiðum :)

Comments

Popular Posts