Fræga ostasalatið

Þessa fékk ég hjá Brynju vinkonu

1 jalapeno ostur
1 mexíkó ostur
1 dós sýrður rjómi 10%
hálfur rauðlaukur
hálf rauð paprika
rauð vínber

Skerið ostana í litla teninga og setjið í skál. Hrærið sýrða rjómanum út í. Skerið rauðlauk og papriku  í litla bita og setjið útí. Síðan sker ég vínberin í 4 hluta og set saman við. Best að láta standa aðeins áður en það er borið fram, þá blandast kryddið vel út í rjómann.

Borið fram með ritzkexi og er sjúúúúúklega gott :P

Comments

Popular Posts