Flatbrauð

250 gr Spelt
250 gr heilhveiti
250 gr rúgmjöl
1 tsk salt
4 tsk vínsteinslyftiduft
6 dl mjólk

Blandið öllum þurrefnunum saman og hitið mjólkina að suðu. Hellið mjólkinni síðan yfir hveitiblönduna og hnoðið í hrærivél. Hnoðið vel. Mótið deigið í aflanga pylsu og skiptið deiginu í 12-14 bita. Fletjið hverja köku út með kökukefli og pikkið göt með gaffli. Bakið á pönnukökupönnu.

Geymast vel í frysti.





Comments

Popular Posts