Súkkulaðiís a la Birna

200 gr 70 % súkkulaði
4 eggjarauður
150 ml síróp
2 tsk vanillusykur
½ tsk kanill
250 ml rjómi
Möndlur/Hnetur að eigin vali
Þykk karamellusósa

Þeytið saman eggjarauður og síróp, bræðið súkkulaðið í vatnsbaði og blandað saman við eggjablönduna ásamt vanillusykri og kanil. Þeytið rjómann og blandið honum svo varleg útí. Loks eru hneturnar og karamellusósan sett út í og hrært örlítið með pinna eða skaftinu af skeið (myndið 8 með því að hræra). Sett í form og fryst.

Karamellusósa:
100 gr púðursykur
25 gr sykur
50 ml síróp
125 ml rjómi

Sett í pott og hitað rólega að suðu, sjóða rólega þar til nógu þykk.

Comments

Popular Posts