Myntu og engifer kjúklingur

1 kjúklingabringa
1 msk hveiti
1 msk rifin engiferrót
1 chilipipar
1 gulrót
¼ blaðlaukur
1 msk vínedik
1 msk sykur
Safi og rifinn börkur af 1 límónu
2 msk fiskisósa
½ tsk salt
2 msk sojasósa
2 msk fersk mynta

Skerið kjúklinginn í strimla. Setjið strimlana í plastpoka ásamt hveitinu og hristið vel. Steikið strimlana í olíu og bætið svo engifer, chilli, gulrót, blaðlauk, ediki, sykri og ½ tsk af límónuberki. Í lokin er fiski- og sojasósu bætt útí og bragðbætt. Kreisið límónusafa yfir réttinn og skreytið með myntublöðum.

Comments

Popular Posts