Möndlu-karamelluterta

1 botn:
3 egg
100 gr sykur
2 msk hveiti
1/2 tsk lyftiduft
100 gr hakkað suðusúkkulaði
100 gr möndlur í flögum

Þeytið egg og sykur vel saman. Bætið hveiti og lyftidufti útí og loks súkkulaðinu og möndlunum. Smyrjið formið vel og bakið í 25 mín við 175°C.

Karamella:
1.5 dl rjómi
90 gr sykur
1,5 msk síróp
20 gr smjör
1 tsk vanilludropar

Setjið rjóma, sykur og síróp í pott og látið sjóða þar til það þykknar. Bætið þá smjörinu og dropunum útí. Kælið og hellið síðan yfir kökuna.

Comments

Popular Posts