Kjúklingabringur m/hnetum og kókos

4 kjúklingabringur
1 hvítlauksrif, pressað
1 tsk cummin
1 tsk kóríander
1 msk ostrusósa
1 msk olía
1 dós kókosmjólk
1 dl jarðhnetur, hakkaðar
1 ½ msk sojasósa
1 msk sítrónusafi

Hvítlauk, cummin, kóríander og ostrusósu hrært saman og penslað á kjúklinginn. Láta bíða í klst, brúna svo á pönnu í 4-5 mín hvoru megin. Bæta kókosmjólk, jarðhnetum, sojasósa og sítrónusafa á pönnuna. Láta suðuna koma upp og krydda með salti og pipar. (fyrir 4 )

Comments

Popular Posts