Kanilterta

5 botnar:
175 gr smjörlíki
175 gr sykur
175 gr hveiti
3 tsk kanill
1 egg

Smjörlíki og sykur hrært vel saman og síðan er eggið sett útí. Hræra þurrefnunum varlega saman við. Skiptið í 5 hluta og smyrjið hringlaga á bökunarpappír og bakið við 175°c í 5-10 mín. Takið botninn svo strax af plötunni og látið kólna.

½ l rjómi settur á milli, yfir og til hliðar. Skreytt með súkkulaðispænum.

Comments

Popular Posts