Ítölsk matarmikil grænmetissúpa

1 laukur
2 gulrætur
2 sellerí
2 kartöflur
100 gr sellerírót
1/2 blómkálshöfuð
3 hvítlauksrif
1 ½ l vatn
3 grænmetisteningar
1 dós tómatar
3 msk tómatþykkni
1 tsk meiran
Pipar
2 dl pasta
2 msk fersk steinselja
3 msk nýrifinn parmesan

Hitið olíu og léttsteikið hvítlauk og lauk. Setjið allt grænmeti í pottinn og látið krauma í olíunni í 2-3 mín. Bætið vatni, teningum, tómötum og þykkni í pottinn og kryddið. Látið súpuna sjóða við vægan hita í 20 mín og sjóðið pastað með seinustu 10 mín. Sáldrið steinselju og parmesan áður en borið er á borð.

Berist fram með nýbökuðu brauði, t.d. focaccia

Comments

Popular Posts