Ítölsk kjúklingabringa m/parmaskinku

4-6 kjúklingabringur
Salt og pipar
Fersk salvia
4-6 sneiðar parmaskinka
100 gr rifinn parmesan
100 gr rifinn mozzarella
500 gr tagilatelle
2-3 dl rjómi
3-4 sólþurrkaðir tómatar
Ferskar kryddjurtir
Ólívur

Kryddið kjúklingabringurnar með salti og pipar og steikið í 2 mín hvoru megin. Takið af pönnunni, vefjið parmaskinkunni utanum og stingið salvíublöðum á milli. Leggið í eldfast mót. Blandið saman ostunum og dreifið yfir bringurnar. Stingið inní 225°c heitan ofn og gratínerið í 10 mín. Sjóðið pastað og sigtið vatnið svo frá. Setjið svo rjómann, sólþurrkuðu tómatana og fersku kryddjurtirnar saman við. Puntið með ólívum og ferskri salvíu.

Comments

Popular Posts