Æðisleg kókoskaka

4 eggjahvítur
200 gr sykur
100 gr kókosmjöl
100 gr valhnetur

Hitið ofninn í 180°C. Stífþeytið eggjahvítur og sykur. Blandið þá kókosmjölinu og söxuðum valhnetum varlega útí. Bakið í lausbotna formi í 20-25 mín.

Krem:
100 gr suðusúkkulaði
50 gr smjör
4 eggjarauður
60 gr flórsykur

Bræðið súkkulaðið og smjörið í potti við vægan hita og kælið. Þá er eggjarauður og flórsykur hrært vel saman. Blandið síðan öllu saman og smyrjið á kökuna.

Gott með þeyttum rjóma.

Comments

Post a Comment

Popular Posts