Heitt chili súkkulaði

1 og 2/3 b nýmjólk
½ vanillustöng, klofin
1 rauður chilli pipar, klofinn og fræhreinsaður
1 kanilstöng
45 gr suðusúkkulaði

Setjið vanillustöng, kanilstöng og chilipipar útí mjólk og hitið í potti á lágum hita. Brytjið niður súkkulaði og bræðið í mjólk. Slökkvið undir og látið standa í nokkrar mínutur. Sigtið svo kryddið frá og hellið á brúsa.

Comments

Popular Posts