Daim ísterta

Marengs:
150 gr sykur
3 eggjahvítur
150 gr saxaðar möndlur eða hnetur

Stífþeytið saman eggjahvítur og sykur. Bætið hnetunum útí. Bakið við 175°c í 40-50 mín.

Ískrem:
3 eggjarauður
75 gr sykur
peli rjómi
3 lítil daim

Þeytið eggjarauður og sykur vel saman. Þeytið rjómann og blandið honum svo varlega saman við ásamt súkkulaðinu. Setjið kremið á og frystið. Takið út klst áður en hún er borin á borð.

Comments

Popular Posts