Ceasar salat m/kjúkling

Þessi réttur er í miklu uppáhaldi hjá mér. LOV´IT :)

1 stk romaine kál
½ hvítlauksgeiri
1 egg(soðið í eina mín)
sítrónusafi
brauðteningar
rifinn ostur
parmesean ostur

Kryddlögur
4 msk matarolía
1 msk edik
salt og pipar
½ marinn hvítlauksgeiri

Sjóða eggið í eina mín. Nudda hvítlauksgeiranum innan í salatskálina. Þeyta kryddlöginn saman og setja hann í skálina. Þeyta kryddlöginn og eggið saman með gaffli. Blanda salatinu og brauðteningunum í skálina, kreista sítrónusafa og mala pipar yfir salatið. Að lokum er ostinum stráð yfir salatið.

Steikið kjúklingabringu á grillpönnu og kryddið með salti og pipar. Kreistið hálfa sítrónu yfir og skerið í þunnar sneiðar og raðið ofan á salatið.

Comments

Popular Posts