Bruchettur

1 baguettte
1 msk ólívuolía
2 hvítlauksgeirar
125 gr rjómaostur
1 b svartar ólívur
Salt og pipar
Basilíka
250 gr cherry tómatar

Byrja á því að skera baguette brauðið í sneiðar og setja örstutt inní ofninn. Gott að skera hvítlauksgeira í tvennt og nudda yfir brauðið þegar það kemur út úr ofninum. Blanda ólívuolíu, hvítlauk, rjómaosti, ólívum og salti&pipar saman þar til orðið slétt og samfellt. Smyrja ofan á baguette brauðin og skreyta með basil laufum og cherry tómötum.

1 baguette
Hvítlauksgeirar
Grænt pestó
Feta ostur
Ólívur
Cherry tómatar
Rocket salat

Byrja á því að skera baguette brauðið í sneiðar og setja örstutt inní ofninn. Skera hvítlauksgeira í tvennt og nudda yfir brauðið þegar það kemur út úr ofninum. Smyrja baguette brauðin með pestói, mylja yfir fetaost, skera olívur og tómata í litla bita og setja yfir. Skreyta með rocket salati.

Comments

Popular Posts