Besti kjúklingaréttur Birnu

Þetta er klárlega besti rétturinn minn :)

4 skinnlausar kjúklingabringur
Sítrónupipar
Olía
600 gr sveppir
2 hvítlauksrif
Safi úr ½ sítrónu
¾ b rjómi
½ b ferskur parmesan ostur
2 msk ferskt mynta

Steikja bringurnar í 2 mín og krydda með sítrónupipar. Setja til hliðar. Steikja sveppina í olíu og hvítlauk, færa til setja bringurnar á pönnuna og sveppina yfir. Hella sítrónusafanum yfir bringurnar og svo rjómann. Strá parmesan yfir og loka pönnunni, sjóða við vægan hita í 7 mínutur. Strá myntu yfir í lokin.

Comments

Popular Posts