Berjabaka á grillið

600gr blönduð ber

Deig:
200gr sykur
75gr hveiti
50gr haframjöl
100gr smjör
½ tsk kanill

Setið berin í álform. Setjið allt sem á að fara í deigið í stóra skál og myljið saman. Dreifið yfir berin og hyljið með álpappír. Slökkvið á grillinu öðru megin og setjið formið þar. Bakið í 15-20 mín, hafið grillið lokað nema hitinn sé of mikill þá er gott að hafa rifu. Fjarlægið álpappírinn og bakið áfram í 10mín. Berið fram með rjóma eða ís.

Comments

Popular Posts