Um mig

Ég er mikil áhugamanneskja um eldamennsku og bakstur. Ég fékk þessa bakteríu snemma en ég hef bakað frá 9 ára aldri og fór fljótlega eftir það að elda. Ég er svo lánsöm að eiga góða mömmu sem leyfði mér að prófa mig áfram í eldhúsinu og setti hún mér einungis eina reglu: Að ganga alltaf snyrtilega um og ganga strax vel frá eftir mig. Þessari reglu fylgi ég enn í dag.

Mér finnst fátt skemmtilegra en að prófa nýjar og spennandi uppskriftir, bæði í mat og kökum en ég viðurkenni það að ég er algjör kökukelling. Ég hef líka mikið verið að prufa mig áfram í sykurmassaskreytingum og það finnst mér æði. Draumurinn er að opna kökugerð og jafnvel gefa út uppskriftarbók. Maður má allavega láta sig dreyma.

Ég vona að þið finnið eitthvað nytsamlegt á síðunni minni og endilega skiljið eftir ykkur spor ef þið prófið eitthvað af réttunum. Gaman að heyra ef ykkur líkar vel.

Knús

Birna

Comments

Popular Posts